Innskráningar kubbur

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Jæja, kominn tími til að skrifa smá.

12. október 2008 klukkan 11:53
Það er að verða mánuður á milli færslna hjá mér og það gengur auðvitað ekki.  Það hefur ýmislegt á dagana drifið síðan ég skrifaði síðast, bæði stórt og smátt.  Hérna kemur eitthvað af því.

Við Haukur skruppum til USA - Minneapolis - og vorum í viku.  Það var mjög fínt og gaman að koma þangað.  Þetta var afslöppunarferð með smá viðskiptalegu ívafi.  Nú, auðvitað versluðum við aðeins eins og gengur og gerist en komum samt ekki heim nema með hluta af þeim kílóum sem má hafa með sér að vestan.  Og viðskiptalega var ferðin ágæt, ég náði að vísu ekki að rukka inn peninginn sem ég ætlaði en ég gerði ágætis sölur ef allt gengur upp.  Og við komum úthvíld heim og það var best.

Námið gengur svona þokkalega.  Miklu þyngri önn núna heldur en síðasta önn.  Maður verður að hafa sig allan við til að missa ekki af lestinni, sérstaklega í fjármálum fyrirtækja.  Það er bara mjög þungur áfangi þótt ég hafi haldið fyrirfram að það yrði léttast fyrir mig.

Við Haukur vorum á árshátíð starfsmannafélags Dalvíkurbyggðar í gærkvöldi.  Skrallið var haldið í Árskógi og það var alveg meiriháttar gaman, góður matur, skemmtiatriðin fín og félagsskapurinn alveg magnaður.  Við vorum komin heim kringum tvöleytið og það mátti ekki seinna vera fyrir mig.  Það var ennþá mikil gleði í gangi þegar við yfirgáfum staðinn og líklegt að fólk hafi dansað fram yfir þrjú.

Framundan er ströng vinnuvika og svo er okkar árlegi framleiðendafundur í vinnunni um næstu helgi.  Laugardagurinn undir þar.

Ég ætla að halda menningarklúbb heima í vikunni, vonandi finnum við dag þar sem allar geta mætt.

Mikil ósköp hafa gengið yfir þjóðfélagið undanfarna daga.  Maður hefði hreinlega ekki trúað því í sínum villtustu hugleiðingum að þessar hamfarir yrðu þvílíkar.  Ég hef mikla samúð með fólki sem missir vinnuna í þessum ósköpum og hefur kannski fyrir stórum fjölskyldum að sjá.  Sem betur fer er eitthvað af störfum á lausu í umönnun og þjónustu en það er alveg ljóst að margir þurfa að gíra sig verulega niður eftir hátt fall úr skýjakljúfum.
 
Jæja, vonandi verður ekki alveg svona langt að bíða næstu færslu.
B.kv. til allra og góðar hugsanir :-)

Stopular færslur

17. september 2008 klukkan 12:23
Það verða eitthvað stopular færslur hérna inni hjá mér á þessari önn.  Frítíminn minn fer allur í námið og svo er maður auðvitað að reyna að reka heimilið líka af veikum mætti - það situr allt þar á hakanum þessa dagana.  Nema kannski eldamennskan og þvottastandið.  Það kemur tími til að þrífa til seinna - það a.m.k. hleypur ekkert frá manni :-/

Ég skrapp í sumarbústað í Skagafirði fyrstu helgina í sept.  Við fórum hjónin með SMH og svo komu pabbi og mamma líka.  Bústaðurinn er í hverfinu uppi við Reykjahól, blasir við þegar maður keyrir niður af Vatnsskarðinu.  Mjög friðsælt og fallegt þarna og bústaðurinn mjög góður og frábær heitur pottur með fullt af nuddstillingum.  Við keyrðum aðeins um Skagafjörð og skruppum í tvær réttir.  Bæði í Stafnsrétti í Svartárdal og svo í Mælifellsrétt en í þessar réttir báðar kemur fé sem Íris og hennar tengdafjölskylda sjá um að draga og reka heim.  Við SMH tókum þátt í heimrekstrinum úr Mælifellsrétt og það var mjög gaman, fín líkamsrækt fyrir þann daginn.

Námið gengur sinn vanagang, einn áfanginn reynir verulega á en það er fjármál fyrirtækja.  Hljómar reyndar ekki sérstaklega erfitt, a.m.k. ekki fyrir manneskju eins og mig.  En er bara verulega flókið, sérstaklega þar sem námsefnið er allt á ensku.  Svo eru hin og þessi smá heimaverkefni sem taka tíma eins og vera ber.  En allt er þetta gaman og gefandi og eins gott að maður læri og nái prófunum því til þess er maður að þessu.

Það er nóg að gera í vinnunni, ýmis smáverkefni sem taka mikinn tíma ásamt venjulegu verkefnunum.  Ég þarf að fara á Sauðárkrók og halda kynningu um Nígeríumarkaðinn á mánudaginn.  Svo fer ég til USA í vikuferð um miðja næstu viku.  Ég ætti svo að vera á sjávarútvegssýningunni í Kóp. í byrjun okt. en það hittist akkúrat á námslotu.  Þannig að ég sendi stelpurnar sem fulltrúa okkar í þetta skiptið - ég veit að þær standa sig með sóma.  Október verður líka flakkmánuður, von á tveimur kaupendum og svo ætlum við að halda framleiðendafund hérna hjá okkur.  

Heima við er frekar rólegt enda eins gott.  Snorri fluttur inn á heimavist og byrjaður í skólanum og finnst það ekki leiðinlegt.  Hann er í herbergi með Jóhanni Óla systursyni mínum úr Borgarfirði.  Maður verður líklega ekki mikið var við þá ef að líkum lætur, það er svo gaman innfrá og það er bara frábært.  Haukur með sitt paint ball og laser tag með vinnunni, bara þónokkuð að gera.  Eins gott að Sveinn Margeir er eins meðfærilegur og góður og hann er í öllum þessum asa.

Nóg í bili, örugglega góður tími í næstu færslu en ég reyni að færa af og til svona fyrir ykkur frábæru stelpur sem nennið að fylgjast með mér :-)

Ágústlok

31. ágúst 2008 klukkan 19:51
Jæja, síðasti ágústdagurinn að kvöldi kominn.  Helgin búin að vera fín, fórum í berjamó báða dagana og erum að gæða okkur á bláberjum með rjóma og krækiberjum með skyri eða hafragraut.  Ummmm - lúxus.

Skruppum í tvöfalt afmæli í gær, Hrönn frænka Hauks 50 ára og Gummi sonur hennar 30 ára.  Veislan var haldin í Oddfellow húsinu á Akureyri og þar var mikið fjör og gaman.  Við fórum samt snemma heim en Haukur varð eftir á Bakaríinu þar sem Jói og Gunni voru með síðustu opnunina.  Ég fór heim að sofa :-)

Mikið að lesa og reikna í náminu.  Ég er að reyna að ná tökum á þessu og það þarf mikinn tíma til að halda í við það sem við eigum að tileinka okkur.  Sat t.d. og reiknaði örugglega einhverja 4-6 tíma núna um helgina.  En þarf samt aðstoð til að klára nokkur dæmi.

Menningarklúbbur hjá Helgu Dögg á morgun.  Mikið verður gaman að hitta stelpurnar eftir sumarfríið.

Skólinn byrjaður

25. ágúst 2008 klukkan 12:22

Skólasetning hjá SMH í dag.  Ég skrapp með og upplifði stemminguna.  Hann hlakkar mikið til að byrja aftur í skólanum sem betur fer.  Það eru víst ekki allir sammála því.

Ég byrjaði líka í skólanum á fimmtudaginn.  Námsfög annarinnar eru mannauðsstjórnun, lögfræði og fjármál.  Ég fékk vægt sjokk á fimmtudaginn en svo smá lagaðist þetta á föstudag og laugardag. Þetta verður samt mikil törn og mjög mikið lesefni a.m.k. í tveimur fögum.

Á laugardagskvöldið skellti ég mér í bíó með fullt af hressum Dalvíkurkonum, sáum Mamma mia - fórum á "syngdu með" sýningu og skemmtum okkur konunglega.  Við vorum sko ekki búnar að fá nóg eftir bíó þannig að við drifum okkur á Bárubúð með ABBA diska og sungum og dönsuðum þar lengi nokk.  Alveg meiriháttar gaman, myndin var stórkostleg og félagsskapurinn frábær.  Við höfðum stuttan fyrirvara á þessari bíóferð, annars hefði ég viljað hringja í margar konur í viðbót og drífa þær með.  Spurning hvort það verður aftur svona "syngdu með" sýning síðar.  Mæli með því en eiginlega nauðsynlegt að vera í hressum hópi held ég.  A.m.k. sýndist mér að það væri mest stemming hjá okkur í bíóinu.  Sem er ekkert skrítið :-)

Strákarnir okkar í ísl.handboltalandsliðinu voru frábærir, þvílík skemmtun sem þeir eru búnir að hafa fyrir okkur undanfarnar tvær vikur.  Og að vinna silfur á Ólympíuleikum, þvílíkt afrek.  Maður er stoltur af að hafa upplifað þetta með þeim og þjóðinni allri.  Það var flaggað heima hjá okkur í gær að tilefni úrslitaleiks og árangurs þeirra. 

Dýragarðsdagur að baki

18. ágúst 2008 klukkan 09:54
Í gær var frítt í Dýragarðinn á Krossum, KEA dagur.  Það var líka markaðsdagur og karamelludreifing.  Þvílíkur fjöldi sem kom, trúlega um 700 manns.  Bílastæðin voru á að líta eins og við Glerártorg á Þorláksmessu.  Við vorum að vinna innfrá mörg úr stórfjölskyldunni trúlega kringum 15 manns sem komu að vinnunni.  Nóg að gera í kaffisölunni, frábær veður og meiriháttar dagur í heild sinni.

Þegar við komum heim kíktum við aðeins í afmæli til Nökkva og Þorra og fengum góðgjörðir hjá Huggu og Þóri, Mexíkósúpu og berjaböku með ís.  Ég var allt of södd þegar ég kom heim, nennti samt að ganga frá eftir baksturinn og ganga frá peysunni hans Felix.  Ég sem sagt prjónaði fullorðins-lopapeysu á einni viku, byrjaði á sunnudaginn eftir Fiskidaginn og kláraði hana í gær.  Þvoði og lagði til og nú er hún að þorna.  Hún átti reyndar ekkert að vera tilbúin fyrr en fyrir réttir en ég notaði tímann við sjónvarpið við að horfa á Ólympíuleikana til að prjóna.

Þessi vika verður frekar annasöm.  Leikur í kvöld hjá Snorra á Akureyri og ég á að baka fyrir hann.  Suðurferð á morgun og heim aftur á miðvikudag. Annar leikur hjá Snorra á miðvikudagskvöld.  Skóli á fimmtudag, föstudag og laugardag.  Og svo ætla ég að reyna að komast í bíó og sjá Mamma mia ef það verður ekki hætt að sýna hana þegar ég loksins gef mér tíma.

Sunnanvindur

15. ágúst 2008 klukkan 09:07
Mikill sunnan strekkingur í gær og dag.  Ef þetta hefði komið fyrr á sumrinu væri örugglega hitabylgja hérna núna.  En maður finnur eiginlega haustkeiminn í loftinu núna. 

Ég fór í gær og gekk með SMH í golfmóti fyrir krakkana í golfkl.Hamri.  Byrjaði um kl. 17 og við vorum komin heim um kl. 20:30.  Mjög gaman að fylgjast með grísunum í þessu móti.  Yngsti keppandinn 6 ára á árinu.  Reyndar allt upp í 17 ára líka.  Þessi yngstu hafa mjög gaman að þessu og þetta er mjög skemmtilegt hobbý fyrir þau (og góður agi líka).

Sat með Hauki við sjónvarpið um kvöldið, horfðum m.a. á 10 fréttirnar og sáum viðtalið við Hönnu Birnu og Óskar Bergs.  Nýr meirihluti í Reykjavík lítur dagsins ljós enn eina ferðina.  Þá er kominn hringur þar nema að Óskar er í sæti Björns Inga.  Það verður fróðlegt að sjá framhaldið.  Sem framsóknarmaður þá styð ég auðvitað þessa borgarstjórn :-)  Ég trúi að ruglinu sé hér með lokið í bili og vinnufriður skapist.  Ég þekki Óskar aðeins og þarna fer traustur maður sem er ekki mikið fyrir sviðsljósið en meira fyrir verkin.

Fiskidagurinn mikli að baki.

13. ágúst 2008 klukkan 09:42
Þá er enn ein Fiskidagshelgin að baki og við Dalvíkingar óðum að ná okkur eftir gleðina.  Þessi Fiskidagshelgi er ein sú besta sem ég hef upplifað.  Ég náði að komast yfir meira núna heldur en oft áður.  Við buðum upp á súpu á laugardagskvöldinu og í fyrsta skipti náðum við að eiga súpu fram undir kl. 23.  Það var ótrúlega gaman og mun skemmtilegra heldur en að þurfa að slökkva á kyndlunum kringum 21:30 eins og í hin skiptin.  Heimabakaða brauðið kláraðist líka rétt í restina - ég er ekki alveg með það á hreinu hvað var bakað úr miklu en ég gæti trúað að það hefðu verið um 12 kg af hveiti.  Við hjónin erum búin að ræða aðeins að taka okkur pásu í súpugerðinni á næsta ári og rölta um og heimsækja fólk á föstudagskvöldinu.  Ég held að það gæti orðið mjög skemmtileg tilbreyting.

Pabbi, mamma og Sigurjón Daði komu í heimsókn til okkar um helgina og Sigurjón Daði varð eftir.  Við kíktum í berjamó og náðum að tína þónokkuð, a.m.k. nóg til að hafa í eftirrétt í 3 skipti.  Ummmm, ný bláber með smá sykri og rjómablandi.  Þetta er tíminn fyrir svoleiðis nammi.

Næstu dagar verða venjulegir vinnudagar hjá mér.  Skólinn byrjar svo 21.ágúst en þá er fyrsta lota haustannarinnar.  Námsgreinarnar núna eru lögfræði, mannauðsstjórnun og fjármál.  Mér sýnist að það verði nóg að lesa og eins gott að reyna að skipuleggja tímann sinn vel þessar haustmánuði til jóla.  Prófin fyrri partinn í desember.  Úff, þetta er sem sagt að nálgast aftur, það er víst.

Vúpps....

06. ágúst 2008 klukkan 10:24
Allt í einu kominn 6.ágúst og Fiskidagurinn mikli að nálgast óðfluga.  Allir að komast í þessa sérkennilegu friðar-, náungakærleiks- og "sælla er að gefa en þiggja" stemmingu sem einkennir þessa yndislegu Dalvíkurdaga ágúst hvern.  Fjöldi fólks kominn í bæinn nú þegar og röltir hér um í friðsæld og gleði og nýtur lífsins.  Og íbúarnir á fullu, allir að fegra í kringum sig og búa sig undir gestamóttökuna.  Dagskráin komin í hús landsmanna, fjölbreytt og skemmtileg og mikið meira en nóg við að vera frá miðvikudegi til sunnudags.  Velkomnir landsmenn, við erum tilbúin til að taka á móti ykkur öllum !!!!

Verslunarmannahelgin leið hjá í friði og spekt.  Við vorum heima nema við skruppum til Grímseyjar í heimsókn á mánudeginum.  Alveg frábært hreint.  Mikið gaman að koma út í eyju en ég og Sveinn Margeir vorum að fara í okkar fyrsta skipti á ævinni.    Það var full ferja á leiðinni út, 106 farþegar hvorki meira né minna.  Við hittum Þorlák og Huldu í ferjunni og fleiri eyjaskeggja.  Svo erum við rétt komin út í eyju þegar við hittum Síu frænku og það urðu fagnaðarfundir.  Hún hringdi í Konna son sinn sem kom á bíl og keyrði okkur um eyjuna og sagði okkur frá staðháttum og sögur úr eyjunni.  Alveg ómetanlegt að fá heimaaðila til frásagnar.  Og hann stóð sig vel strákurinn - ætti að leggja þetta fyrir sig, nóg er um ferðamanninn þarna.  Við vorum ekki komin til baka til Dalvíkur fyrr en kl. 19, þreytt en alsæl með daginn.  Mæli eindregið með þessu, fara út með Sæfara, stoppa í 4 tíma og heim aftur.  Reyndar segi ég að maður þurfi aðra ferð til að klára að skoða það sem maður komst ekki yfir í þessari ferð.

Jæja, nóg í bili.  Sjáumst á Fiskidaginn mikla!!!

Komin heim úr vestfjarðaferð.

28. júlí 2008 klukkan 22:11
Jæja, þá er maður kominn heim úr ferðalaginu.  Vestfirðir að baki.  Við fengum alveg frábært veður alla ferðina, hittum þá sem við ætluðum okkur að hitta og fleiri til.  Það sem ég sá nýtt í þessari ferð voru þessir staðir:  Strandir norðan Hólmavíkur allt að Ingólfsfirði, Súgandafjörður utan Suðureyrar, Núpur í Dýrafirði, Ingjaldssandur, Látrabjarg, Keflavík og minjasafnið að Hnjóti.  Aðra staði var ég búin að skoða áður en það var gaman að keyra um þá enn og aftur.  Veðrið var alveg meiriháttar fyrir vestan eins og víst reyndar næstum alls staðar á landinu.  Og verður næstu daga skilst mér á fréttum.  Bara gott mál.

Ég skrapp í skokk í ÓÓÓ hópnum áðan og tók vel á því.  Gott að komast í hreyfingu aftur eftir fríið.  Við skokkuðum góðan hring og vorum svo í æfingum við sundlaugina.  Ég sá að það er allt að fyllast á tjaldstæðunum.  Ég trúi því nú varla að fólk sé farið að koma strax fyrir Fiskidaginnn mikla en það verður gaman að sjá hvernig mál þróast næstu daga.  Trúlegra að það sé umferð núna út af því að veðurspáin er svo góð fyrir norður- og norðausturland.

Það er nóg að gera hjá þvottavélinni á heimilinu þessa stundina.  Snorri kom heim úr keppnisferð til Reykjavíkur með Þór (spiluðu tvo leiki og unnu báða :-) og ég fékk eina tösku fulla af keppnisgöllum til að þvo.  Þar fyrir utan bíður þónokkkur stabbi af óhreinu taui frá ferðalaginu o.fl.  Ég gæti trúað að þetta yrðu sex vélar þegar upp er staðið.  Eins gott að það viðrar vel til að þurrka úti á snúru.

Jæja, best að reyna að gera eitthvað að gagni á heimilinu, nóg bíður víst af heimilisstörfum.

Rigning

21. júlí 2008 klukkan 16:29
Það er nýbyrjað að rigna hér.  Leifar af fellibyl að fara yfir landið skv. fréttum.  Vonandi verður ekki mikið rok með þessu en ég fagna vökvuninni.

Helgin var afar góð en mikið annríki.  Á laugardaginn var Strandamótið í fótbolta fyrir 7.flokk.  Við Sveinn Margeir og Snorri skemmtum okkur konunglega.  Haukur komst ekki nema í mýflugumynd.  Okkar lið tapaði öllum sínum leikjum en þeir voru bara mjög góðir og náðu vel saman.  Veðrið lék við okkur og dagurinn var hinn besti.

Í gær var markaðsdagur í Dýragarðinum.  Ég var með bás og það gekk bara nokkuð vel, seldi rúmlega fyrir kostnaði og það er jú markmiðið.  Sveinn Margeir fékk ágóðann enda uppástóð hann að við ættum að skipta jafnt.  Bara gaman að því.  Kl. 16 fórum við svo með vinnuna og fjölskyldur í Laser Tag.  Rosalegt fjör og gaman.  Borðuðum svo heima á eftir, pizzur, taco-kjúklingasúpa a la Heiða - mjög gómsæt og svo terta á eftir sem gleymdist næstum (takk Valþór fyrir að minna á hana).  Dagurinn var hinn besti þegar upp var staðið.

Vinnuvika framundan.  Fer trúlega á flakk vestur á firði á fimmtudag og föstudag þannig að það er eins gott að halda sig við efnið þangað til.